þriðjudagur, desember 15, 2009
Heili á hásuðu.
Líður í alvöru eins og það rjúki úr hausnum á mér... en það eru bara 2 dagar eftir!!! Það eina sem kemst að í hausnum á mér akkúrat núna, er hvað ég ætla að sofa rosalega mikið um helgina, helst bara alla helgina! haha
Skemmtileg mantra; 2 dagar eftir, svefn um helgina, 2 dagar eftir, svefn um helgina... ;)
Sjáumst hress, eftir 2 DAGA!
Helga
|

þriðjudagur, desember 01, 2009
Smá lærdóms pása...
Ég elska Urban Outfitters! Get auðveldlega gleymt mér tímunum saman við að skoða úrvalið á vef-verslun þeirra. En þar sem ég hef nú ekki tíma fyrir of mikið slugs, þá leyfði ég mér bara nokkrar mínútur í að skoða í þetta skiptið. Varð að deila með ykkur þessum ótrúlega fallegu hlutum sem ég var að dást að...

Ef ég kynni að sauma, þá væri ekki leiðinlegt að eiga svona fallega vél... verst að ég kann ekki að sauma...

Loksins falleg og nett digital vél!

Veit ekki alveg hvort að ég sé bara með lame húmor eða hvað, en mér finnst þessi sturtuhetta dásamleg!
Eeenn... þó það sé gaman að skoða fallega, skemmtilega og á köflum fyndna hluti, þá þarf ég víst að halda áfram að lesa um Bresk stjórnmál...
Sjáumst eftir prófin..?!

fimmtudagur, nóvember 26, 2009
Hið margslungna ljón...
LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Þú veist hvað þú sættir þig við, hvað er rétt og hvað þú líður alls ekki. Fólk venst því að sjá þig í einu hlutverki og eiga samskipti við þig þannig, en ljónið er margslungið.
Stjörnuspá dagsins á mbl.is. Finnst hún mjög fyndin af því að bara fyrir um það bil viku síðan var ég að tala við Ósk um hvernig það virðist oft vera erfitt fyrir fólk sem er búið að þekkja mann lengi, að átta sig á því ef maður breytist. Það er gert ráð fyrir að gamlir vanar breytist ekki, og að ákveðnar skoðanir breytist aldrei. Ég held að við föllum öll í þessa gryfju, og þá ekkert síður ég en aðrir. Ég held þó að við höfum öll gott af breytingum, eða eins og máltækið segir; Batnandi mönnum er best að lifa...
Vona að þið eigið öll góðan dag og leyfið ykkur að njóta lífsins!
Kveðja,

föstudagur, nóvember 13, 2009
Bitra Helga, eða Bitra Ísland..?
Af hverju á ég svona auðvelt með að verða reið og bitur þegar ég er á Íslandi? Verð ég of meðvirk af umhverfinu, eða er einfaldlega erfitt fyrir mig að "fitta inn" hérna..? Er ég á villigötum, eða eru Íslendingar almennt í ruglinu? Hvað varð um að vera Shanti og Zen..? Það ergir mig að finna ekki minn rythma hér. Minn rythma á ég að finna hvar sem ég er í heiminum, af því að það er alltaf á mínu valdi að skapa mínar eigin aðstæður. Ég er ringluð og skil ekki hvað ég þarf að gera til að finna jafnvægið... Er ég ekki Íslendingur? Er eitthvað erfiðara að lifa hér en annarsstaðar? Erum við orðin of samstillt til að það megi vera öðruvísi? Þurfa allir að hafa sömu skoðun og falla í sama rammann?
Æi, þvílík vitleysa... Held ég sé alltof "djúp" þessa dagana...
Over and out,

miðvikudagur, nóvember 11, 2009
Heimilislega Helga
Það er dálítið undarlegt að upplifa það að vera komin aftur í skóla. Að sitja heima og læra daginn inn og út, það er skrýtið... Enda hef ég misgott úthald í það. Merkilegt hvað suma daga þarf maður endilega að skreppa í búðina, þvo þvott, þrífa, elda mat og jafnvel baka... En svo þegar lærdómsúthaldið er gott, þá vill íbúðin einhvernveginn verða á hvolfi. Magnað hvað hægt er að óhreinka mikið leirtau bara við það að sitja inní stofu að læra...
Nú er bara rúmur mánuður eftir af þessari önn og er ég hrædd um að hlutirnir verði eitthvað aðeins breyttir eftir áramót. Þar sem ég vil ekki taka námslán, þá verð ég að vinna aðeins meira. Svo vil ég líka taka mér tíma í reikið og aðra hluti sem falla betur undir mitt áhugasvið, þannig að ég mun að minnsta kosti minnka við mig í Háskólanum. Þetta eru búnir að vera skemmtilegir mánuðir (erfiðir á köflum, en skemmtilegir samt), en ég bíð spennt að sjá hvað bíður mín handan við hornið. Það eru ansi margar hugmyndir sem ég geng með í maganum þessa dagana.
Ég gaf mér tíma um daginn til að fara að skoða dýnur fyrir reiki/yoga hornið í stofunni og er nú komin með enn betri mynd á hvernig ég vil hafa þetta. Stefnan er því sett á að í janúar verði reikihornið tilbúið og það verði þá aftur hægt að fara að bóka tíma hjá mér. Svo er ég líka búin að lofa einni að halda reiki námskeið á nýju ári. Það verður gaman að sjá hvort fleiri muni bætast í hópinn. Já, það eru spennandi tímar framundan!
Góða nótt,
Helga x

fimmtudagur, október 08, 2009
Ég engan svík, þetta er jú bara pólitík...
Ég er nú ekki þekkt fyrir að nenna að ræða pólitík og stjórnmál, finnst þetta eitthvað svo niðurdrepandi umræðuefni. En ég fékk þennan brandara sendan í dag og finnst hann svo dásamlegur að ég bara verð að birta hann hér. Hann er dálítið langur, en vel þess virði að lesa.
Á degi í framtíðinni ...
Steingrímur Sigfússon var dauður og kominn til himna þar sem hann hitti
Lykla-Pétur.
Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: Eh, velkominn sagði hann loks.
Þakka þér fyrir, sagði Steingrímur, ég vissi að ég myndi enda hér.
- Nja, sagði Pétur, þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo
við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert
umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við
urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með
því að við gerðum samning við hann.
Samning! Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.
Það er nú ekki alslæmt, sagði Pétur, en djöfullinn sagðist nú þegar hafa
flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti
og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur
um aldur og eilífð.
Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur
vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring.
Steingrímur ýtti á hnapp merktan helvíti í lyftunni og seig svo langt,
langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar
opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. Gamli vinur, vertu
hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn, sagði djöfsi.
Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans
gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu
saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt
voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra
kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar
Gestsson, sem hafði dáið nokkru áður, honum í gúrmet grill (hafði sem sagt
grætt um daginn og grillað um kvöldið) ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri
góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig
Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða
og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.
Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess
staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í
englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að
ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska
ávexti. Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá
Davíð og Þorgerði sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli
innlifun.
Um kvöldið kom Pétur. Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti
og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig? Spurði
postulinn.
Hmm, sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að
ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir
mig. Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím
ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.
Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á
móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs
en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein
flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. En hvar er golfvöllurinn? Spurði
Steingrímur. Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?
- Ah, sagði djöfullinn, þú skilur þetta manna best, í gær var
kosningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!
Og þá er tími til að halda áfram að læra. Heimspeki... vúhú... ;)
Helga x.