<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, nóvember 06, 2004

Jibbí!!!

Ég er komin með nýja vinnu. Ég byrjaði á fimmtudaginn í þjónustuverinu hjá OgVodafone! Á föstudaginn fékk ég svo nýjan síma (Nokia 3200) og svo fæ ég bráðum nýtt símanúmer og ég fæ fullt af afsláttum og fríðindum varðandi síma, símaaukahluti, símkostnað og internetáskrift. Jibbíí... .

Það er líka ótrúlega fínt að byrja á vinnustað þar sem maður þekkir fullt af fólki nú þegar. Þarna eru: Sif S., Sif J,. Bára, Þórunn, Dísa (konan hans Sævars frænda), Gróa Helga, Ragga o.fl.

Í gær fengum við svo loksins að sjá Sólveigu í Idol. Af einhverri ástæðu var hún eini Hvergerðingurinn sem var ekki sýnd syngja fyrir dómnefndina. Við urðum því bara að sætta okkur við að sjá hana syngja í rútunni (eins og við höfum ekki séð það áður ;)

Nú nenni ég ekki að kjafta meira. Bæó.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com